Spurt & svarað

Góð ráð um notkun minnisbókarinnar

Hvernig stroka ég út?

Það eru þrjár aðferðir til að stroka út:

1. Penni fylgir með minnisbókinni. Ofan á pennanum er sérstakt strokleður, við mælum með að nota það til að stroka út stafsetningarvillur.
2. Til að stroka út heilar blaðsíður mælum við með því að nota rakan klút. Þessi aðferð virkar best ef blekið er ferskt, (ekki eldra en viku gamalt).
3. Til að stroka út heilar blaðsíður, (eldra en viku gamalt blek) mælum við með því að nota sérstakt hreinsisett, sérhannað svo að ferlið verði sem skilvirkast.

Hvernig geymi ég glósurnar mínar? Mælið þið með einhverju appi?

Ef þú vilt geyma glósurnar þínar þá er best að taka mynd með símanum þínum eða skanna í skýjið og nota það app sem hentar þér best. Hægt er að nota hvað app/skönnunarforrit sem er. Hins vegar ef þú notar ekki öpp þá er hægt að nota Cam scanner eða Adobe scan. Fyrir frekari upplýsingar.

Hvernig penna get ég notað?

Penni fylgir með minnisbókinni en hann er sérstaklega hannaður fyrir notkun minnisbókarinnar. Blekið í pennanum þornar fljótt svo það kámist ekki (eða skilji eftir bletti). Hann er með fínum oddi (0,6 mm.) og eru fáanlegur í svörtu og rauðu. Aðra penna sem hægt er að nota og hafa svipaða virkni eru (Staedtler Lumocolor Non-Permanent). Ekki er ráðlagt aðnota aðra penna.

Kámast blekið í pennanum sem fylgir minnisbókinni?

Blekið í pennanum er sérstaklega hannað til að þorna fljótt, á einungis átta sekúndum. Eftir að það þornar kámast það ekki.

Þegar ég stroka út í minnisbókinni klessist blekið. Hvað er til ráða?

Blekið í pennanum er sérstaklega hannað til að þorna fljótt, á einungis átta sekúndum. Eftir að það þornar kámast það ekki. Því er best að bíða í átta sekúndur og stroka svo út. Einnig er hægt að nota rakan klút eða hreinsisettið okkar.

Penninn minn er bilaður eða skrifar ekki. Hvað er til ráða?

Blekið í pennanum er sérstaklega hannað til að þorna fljótt, á einungis átta sekúndum. Eftir að það þornar kámast það ekki. Oddurinn á pennannum þornar auðveldlega upp ef lokið er ekki á. Til að hefja skrif að nýju er best að setja lokið á í smástund og fjarlægja það svo. Það er svampur inni í lokinu sem að virkjar blekið aftur.

Hvernig nota ég hreinsikittið?

Hreinsisettið samanstendur af þremur hlutum: örtrefjaklút, svamp og spreybrúsa. Auðvelt í notkun og hentar vel ef hreinsa á heila minninsbók eða ef blekið í bókinni er orðið gamalt. Ef blekið er minna en viku gamalt mælum við með því að nota spreybrúsann og örtrefjaklútinn. Ef blekið ereldra en viku gamalt er best að nota spreybrúsann og svampinn.

É er örvhent/örvhentur. Get ég samt notað minnisbókina?

Það veltur á ýmsu. Við erum með örvhenta viðskiptavini sem nota bókina án vandkvæða þar sem að blekið þornar mjög fljótt. Hins vegar höfum við líka verið með örvhenta viðskiptavini sem að gátu ekki notað minnisbókina.

Er hægt að endurvinna minnisbókina?

Minnisbókin endist í mjög langan tíma. Ef til þess kemur að það þarf að fleygja henni, þá mælumst við til þess að endurvinna hana, Það er einfalt að taka minnisbókina í sundur og koma því sem til fellur í réttan flokk. Málmur og pappír.

Vistfræðilegar vottanir á infinitebook vörum.

Umhyggja fyrir umhverfinu hefur verið hluti af sögu infinitebook. Pappírinn er 100% endurvinnanlegur og grænmetisblekið er þróað með endurnýjanlegum hráefnum. Allar vörurnar okkar eru vistfræðilega vottaðar.