Privacy policy
Last updated: March 29, 2026
Persónuverndarstefna K4 ehf.
1. Hver erum við?
K4 ehf.
Kennitala: 460125-5100
Netfang: hallo@kreativ.is
K4 ehf. rekur netverslunina Kreativ.is og ber ábyrgð á vinnslu persónuupplýsinga sem fyrirtækinu eru veittar. Fyrirtækið leggur ríka áherslu á að öll vinnsla persónuupplýsinga sé í samræmi við lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.
2. Rafræn viðskiptavettvangur
Netverslun okkar er rekin á Shopify kerfinu, vettvangi sem Shopify Inc. veitir (með aðsetur í Kanada/Bandaríkjunum).
Shopify tryggir vernd gagna viðskiptavina okkar með stöðluðum samningsskilmálum sem samþykktir eru af framkvæmdastjórn ESB. Lestu meira hér: Persónuverndarstefna Shopify
3. Hvaða upplýsingar söfnum við?
Þær upplýsingar sem við söfnum þegar þú leggur inn pöntun eru m.a.:
Nafn, kennitala, netfang, símanúmer.
Heimilisfang (fyrir reikning og sendingu).
Greiðsluupplýsingar s.s. debet - og greiðslukortanúmer eða aðrar bankatengdar upplýsingar (unnar á öruggan hátt af [nafn greiðsluveitanda])
Sjálfkrafa söfnuð gögn:
IP-tala, tegund vafra, upplýsingar um tæki.
Síður sem þú heimsækir og hvernig þú notar vefinn okkar.
4. Í hvaða tilgangi notum við persónuupplýsingarnar þínar?
Við notum persónuuupplýsingarnar þínar til þess að:
Vinna úr og senda pöntunina þína svo hægt sé að uppfylla kaupin.
Halda þér upplýstum, t.d með því að senda staðfestingarpósta og uppfærslur á pöntun.
Aðstoða þig, t.d. svara spurningum sem að þú beinir til okkar.
Senda þér reikninga vegna viðskipta við okkur og rukka fyrir þjónustu/vörukaup.
Halda skrár vegna bókhalds/skatta eins og íslensk lög krefjast.
Koma í veg fyrir svik, vernda fyrirtækið okkar og viðskiptavini.
Enda markaðsefni en aðeins ef þú samþykkir.
5. Með hverjum deilum við gögnunum þínum?
Við deilum gögnunum þínum einungis með þjónustufyrirtækjum sem að koma fram fyrir okkar hönd:
Shopify Inc - sem rekur netverslunina okkar.
Greiðsluveitandi - vinnur úr greiðslum.
Sendingarfyrirtæki - sendir pantanir.
Stjórnvöld - aðeins ef þess er krafist samkvæmt lögum.
Við seljum aldrei gögnin þín.
6. Hversu lengi geymum við gögnin þín
Við geymum gögn eins lengi og þurfa þykir miðað við tilgang vinnslu eða eins og lög krefja.
7. Persónuverndarréttindi þín
Þú átt rétt á að:
Fá aðgang að gögnunum þínum - sjá hvaða upplýsingar við höfum og hvernig þær eru nýttar.
Leiðrétta rangar upplýsingar og uppfæra upplýsingar þannig að þær séu réttar.
Eyða gögnunum þínum (eftir lögboðin geymslufrest).
Andmæla því hvernig við notum gögnin þín.
Flytja gögnin þín.
Afturkalla samþykki fyrir markaðsefni hvenær sem er.
8. Gagnaöryggi
Við verndum gögnin þín með:
SSL dulkóðun fyrir allan gagnaflutning.
Öruggri hýsingu hjá Shopify.
Aðgangsstýringum og reglulegum öryggisuppfærslum.
Ekkert netkerfi er 100% öruggt, en við gerum okkar besta til að vernda upplýsingarnar þínar.
9. Vafrakökur
Upplýsingar um vafrakökur og hvernig við notum þær er að finna í sérstakri Vafrakökustefnu
10. Markaðsefni
Ef þú skráir þig í áskrift að fréttabréfinu okkar, munum við senda þér:
Upplýsingar um nýjar vörur.
Sérstök tilboð.
Fréttir af fyrirtækinu.
Afskráðu þig hvenær sem er með því að smella á hlekk í tölvupósti eða hafa samband við okkur: hello@kreativ.is
11. Breytingar á persónuverndarstefnu
Við kunnum að uppfæra þessa stefnu af og til. Ef við gerum verulegar breytingar munum við láta þig vita með tölvupósti eða tilkynningu á vefsíðunni okkar.
12. Hafðu samband við okkur
Ef þú hefur einhverjar spurningar um persónuverndarstefnu okkar eða þessa persónuverndaryfirlýsingu, eða ef þú vilt nýta þér einhver af þeim réttindum sem þú hefur, vinsamlegast sendu okkur tölvupóst á hello@kreativ.is. Í skilningi gildandi laga um persónuvernd erum við ábyrgðaraðili persónuupplýsinga þinna.
Þessi stefna er í samræmi við:
Almennu persónuverndarreglugerðina (ESB reglugerð 2016/679)
Lög um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga (nr. 90/2018)