Terms of service

Skilmálar

1. Kreativ.is er vefverslun í eigu K4 ehf.

2. Pantanir og afhending vöru

Allar pantanir eru afgreiddar innan 3 virkra daga eftir að pöntun berst. Ef varan er ekki til á lager mun starfsmaður hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar.

Pósturinn sér um allar sendingar á vörum og gilda þá reglur þeirra um skilmála, ábyrgð og afhendingartíma. Sendingarkostnaður er reiknaður samkvæmt gjaldskrá Póstsins og greiðist af kaupanda. Við vekjum athygli á að ekki er hægt að panta og fá sent til útlanda eins og er.

Öll verð í vefversluninni eru birt með fyrirvara um innsláttar- og prentvillur. K4 ehf. áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og/eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust.

3. Skilaréttur

Viðskiptavinur á rétt á því að skila vörum allt að fjórtán dögum eftir staðfestingu pöntunar. Eftirfarandi skilyrði gilda:

- Að varan sé í söluhæfu ástandi.

- Að plastumbúðir og merki framleiðanda séu órofin.

- Að allar umbúðir og fylgihlutir vöru séu óskemmd og í söluhæfu ástandi.

- Að ekki sé um útsöluvöru að ræða.

- Að vara sé ekki sérpöntuð eða sérsniðin að þörfum viðskiptavinar.

Starfsfólk K4 ehf. metur hvort skilavara sé í söluhæfu ástandi. K4 ehf. áskilur sér rétt til að hafna vöruskilum eða bjóða takmarkaða endurgreiðslu í formi inneignar sem samsvarar verði vörunnar. Kaupandi ber kostnaðinn af endursendingargjöldum vegna skilavöru.

4. Gölluð vara

Ef vara reynist haldin galla eftir kaup í vefverslun Kreativ.is á viðskiptavinur rétt á nýrri vöru  í staðinn og greiðir K4 ehf. allan sendingarkostnað sem af því hlýst.

5. Að skila vöru

Ef þú hefur spurningar um innihald eða efni heimasíðunnar er þér velkomið að hafa samband við okkur á hallo@k4.is. Við munum svara öllum þínum fyrirspurnum með ánægju innan tveggja virkra daga.

6. Greiðsluleiðir í boði

Við bjóðum upp á greiðslur með debet- og kreditkortum frá Visa og Mastercard.

7. Lög og varnarþing

Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavikur.

8. Upplýsingar um fyrirtækið

K4 ehf.
Kennitala: 460125-5100
VSK númer: 15132
Netfang: hallo@k4.is